Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólinn Laugaborg Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

laugardalur3

Laugaborg er fjögurra deilda skóli og þar dvelja 93 börn samtímis.
Leikskólastjóri er Helga Alexandersdóttir og aðstoðarleikskólastjóri er Bergþóra Vilhjálmsdóttir.


Megináherslur í uppeldisstarfi leikskólans er umhverfismennt og skapandi starf. Leikskólinn starfar undir áhrifum frá uppeldisaðferðum sem kenndar eru við Reggio Emilia sem er borg á Norður Ítalíu.

Markmið leikskólans er að búa barnið undir þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi og efla virðingu
þess fyrir umhverfi og náttúru. Í umhverfismennt er lögð áhersla á mikilvægi náttúruskoðunar og er endurvinnsla og endurnýting í brennidepli. Leikurinn er eðlilegt tjáningarform barnsins og endurspeglar reynslu þess.
Í leik læra börnin að vinna saman og taka tillit hvort til annars. Í Reggio uppeldisstefnunni er áhersla á sýnina á barnið, foreldrasamvinnu og þátt umhverfis og skráningar.

Leikskólinn Laugaborg var opnaður 1. júní 1966.

 

Viðburðir

Engir viðburðir
 
Leikskólinn Laugaborg | Leirulæk | 105 Reykjavík | Sími: 553-1325 | Póstur | Viðburðir | Fréttir