Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Spurt og svarað


Spurt og svarað Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

altHér fyrir neðan eru upplýsingar um ýmislegt sem við kemur leikskólanum og starfsemi hans.

Staðsetning leikskólans og opnunartími

Laugaborg er við Leirulæk í Laugarneshverfi og er hægt að sjá nánari staðsetningu leikskólans hér. Leikskólinn er opinn frá 7:30-17:00 alla virka daga.

Vistunartími

Þegar barnið byrjar í leikskólanum er gerður samningur um dvalartíma þess. Breytingar á dvalarsamningi eru gerðar í samráði við leikskólastjóra. Gagnkvæmur skriflegur uppsagnarfrestur á samningnum er einn mánuður og miðast við 1. hvers mánaðar.

Lyfjagjöf á leikskólatíma

Ef barn þarf að taka inn lyf er reynt að haga lyfjagjöf þannig að lyfin séu gefin heima en ekki í leikskólanum. Í einstaka tilfellum getur þó verið nauðsynlegt að gefa lyfin á leikskólatíma.

Veikindi

Ef barn veikist eða slasast í leikskólanum er haft samband við foreldra um áframhaldið. Leikskólinn greiðir fyrir tvær fyrstu komur á heilsugæslustöð eða slysadeild. Foreldrar leggja út fyrir greiðslunni og koma síðan með reikninginn til leikskólastjóra.

Í veikindum barna er meginreglan sú að ef það getur ekki tekið þátt í starfsemi leikskólans, er það heima. Leikskólinn kemur þó til móts við foreldra eftir veikindi varðandi útivist þegar þörf er á.

Sumarleyfi

Öll börn í leikskólanum fara í fjögurra vikna frí sem tekið er í kringum sumarlokun leikskólans. Á vef leikskólasviðs má sjá almennar upplýsingar um sumarfrí barna.

Starfsdagar

Leikskólinn lokar fimm daga á ári vegna starfsdaga starfsfólks.

Símanúmer og netföng

Mikilvægt er að foreldrar láti vita ef breyting verður á netföngum og símanúmerum, heima, í vinnu eða í farsíma.

 


Viðburðir

Engir viðburðir
 
Leikskólinn Laugaborg | Leirulæk | 105 Reykjavík | Sími: 553-1325 | Póstur | Viðburðir | Fréttir