Beint í meginmál
Beint í aðalvalmynd
Beint í flýtileiðir
Beint í slóð
Beint í nýjustu fréttir
Leikskólastarf


Leikskólastarf Skoða sem PDF skjal Prenta Senda tengil

alt

Könnunarleikurinn

Á Ljúfalæk er unnið með Könnunarleikinn (Heuristic Play with Objects). Könnunarleikinn má rekja til hugmynda tveggja fræðimanna, Elinor Goldschmied og Sonia Jackson. Lykilatriði í Könnunarleik er að barnið leikur sér af eigin hvörum án þess að starfsmaður stýri því. Hlutverk hans er að sýna áhuga og vera til staðar. Leikur þar sem barnið stjórnar sjálft felur í sér eigin umbun. Leikið er með verðlaust efni eins og lítil og stór ílát, dósir, köngla, keðjur, hólka, korktappa, lykla, geisladiska og fleira.

 alt

Samstarf við Laugarnesskóla

Markvisst samstarf er á milli Laugarnesskóla og leikskóla í Laugarneshverfi. Markmiðið með samstarfi skólanna er að auðvelda börnunum að flytjast á milli skólastiga og að byggja kennslu á reynslu barnanna svo það skapist samfella í námi þeirra. Skólastjórnendur og kennarar hittast einu sinni á ári, meta og skipuleggja samstarfið á milli skólastiga næsta skólaár. Síðan er heimsókn kennara frá báðum skólastigum í skólana til að kynna sér starfið og skipuleggja heimsóknir. Að lokum fara börn og kennarar í heimsóknir í skólana. Börn grunnskólans koma á haustönn og dvelja hluta úr degi í leikskólanum. Börn leikskólans fara seinni hluta vetrar í litlum hópum í Laugarnesskóla. Þau hafa nesti meðferðis og taka þátt í hefðbundnu skólastarfi fyrir hádegi.

 

alt

Hér er hægt að nálgast söngbók Laugaborgar

alt

Hægt er að nálgast Laugaborgarbraginn með því að smella á myndina.

Laugarborgarbragur var  saminn af foreldrum sem áttu börn í Laugaborg hér á árum áður.

Allir í Laugaborg læra Laugaborgarbraginn sem er sunginn við ýmis tækifæri.

 

Textann gerði Guðfinna Rúnarsdóttir og lagið er eftir Tryggva Baldvinsson.

Lesa meira...
 


Viðburðir

Engir viðburðir
 
Leikskólinn Laugaborg | Leirulæk | 105 Reykjavík | Sími: 553-1325 | Póstur | Viðburðir | Fréttir